Þegar umræða fer í gang um framkvæmdir eykst bjartsýnin, ég nefni til dæmis Vaðlaheiðargöngin. Strax og farið var að tala um þau af fullri alvöru, bárust okkur í Arion banka talsvert margar fyrirspurnir um að koma að ýmsum áhugaverðum og framsæknum verkefnum. Ekkert sérstaklega í tengslum við sjálf göngin, segir Sigurður K. Harðarson útibússtjóri Arion banka á Akureyri.
Ítarlega er rætt við Sigurð í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag. Hann segir að sjálfstæði útibúsins sé mikið. Útibúið hérna á Akureyri er hluti af einingu sem sinnir sérstaklega Norður- og Austurlandi. Sérstök lánanefnd þessa svæðis hefur mjög rúmar heimildir og hérna á Akureyri er svæðisstjórinn með aðsetur. Það gerist reyndar ekki oft að við þurfum að leita til höfuðstöðvanna og óska eftir frekari heimildum, við erum það sjálfstæð hérna. Það er mikilvægt, því auðvitað vitum við sem hér störfum og búum hverjar þarfir einstakra viðskiptavina eru, segir Sigurður.
Nánar í prentútgáfu Vikudags.