Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skrifað undir rekstrarsamning við hlutafélagið Vaðlaheiðargöng. Samkvæmt honum er félaginu heimilað að ráðast í framkvæmdir við gerð ganganna, reka þau og innheimta veggjald. Í síðustu viku skrifaði fjármála- og efnahagsráðherra undir lánasamning vegna framkvæmdanna, upphæð lánsins er 8,7 milljarðar króna. Þar með eru allir samningar við ríkið frágengnir, aðeins á eftir að semja við verktakann.
446 milljónir
Í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þór Þórðarsonar þing manns Sjálfstæðisflokksins um kostnað Vegagerðarinnar vegna ganganna kemur fram að kostnaðurinn hingað til sé 446 milljónir króna, Vaðlaheiðargöng ehf. muni endurgreiða Vegagerðinni kostnaðinn.
11,4 milljarðar
Guðlaugur Þór spurði ráðherra einnig um uppfærða kostnaðaráætlun. Í svari ráðherrans segir að áætlunin hafi í ágúst í fyrra verið metin á 10,9 milljarða króna, en miðað við byggingarvísitölu í dag sé upphæðin 11,4 milljarðar.
80 manns að meðaltali
Áætlaður starfsmannafjöldi við gerð gangnanna liggur ekki nákvæmlega fyrir. Miðað við sambærileg verkefni er búist við að heildarfjöldi verði um 80 manns að jafnaði í þrjú og hálft ár. Ekki liggur fyrir hve margir erlendir starfsmenn vinna við verkið, en miðað við hugmyndir verktaka gætu þeir orðið um 25 í tvö ár.
karleskil@vikudagur.is