Í fyrra var útsvar 62 % af tekjum Akureyrarbæjar, þegar einungis er litið á tekjur sjálfs bæjarsjóðs. Samkvæmt upplýsingum Sambands íslenskra sveitarfélaga voru útsarstekjur Akureyrarbæjar fyrstu níu mánuði ársins samtals 4,7 milljarðar, en á sama tímabili í fyrra voru tekjurnar 4,4 milljarðar. Munurinn er 338 milljónir króna, eða 7,7 %.
Útsvar er veigamesti tekjustofn sveitarfélaga, þer dregið af launum launþega ásamt tekjuskatti ríkisins.
Dan Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar segir að þessar tölur séu í samræmi við þær áætlanir sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. September er tekjuhæsti mánuðurinn til þessa, útsvarstekjur mánaðarins voru 565 milljónir króna. Á hinum endanum er svo janúar, útsvarstekjurnar í þeim mánuði voru 469 milljónir króna.
karleskil@vikudagur.is