Þetta lítur mjög vel út, segir Róbert Fanndal Jósavinsson bóndi í Litla-Dunhaga í Hörgársveit, en hann og Árni Arnsteinsson í Stóra-Dunhaga í Hörgársveit rækta í sameiningu korn á um 30 ha lands og dreifast kornakrarnir á sex staði í Hörgárdal. Þeir hófu kornskurð í liðinni viku og eru um það bil hálfum mánuði fyrr á ferðinni en vant er. Róbert segir að hitastigið í sumar, sem að jafnaði var í hærri kantinum hafi gert gæfumuninn, sem og einnig fjöldi sólskinsstunda.
Kornið er ekki svo viðkvæmt fyrir þurrki, segir hann. Uppskeran í fyrra var víðast hvar fremur léleg, en útlitið nú er ágætt og segir Róbert að til að mynda sé kornþroski mun betri nú en var í fyrraumar. Dunhagabændur selja kornið til Bústólpa sem framleiðir úr því fóður og segir Róbert það jákvætt fyrir alla að geta lagt til hráefni til innlendrar fóðurgerðar. Fyrsta sending er þegar farin til Bústólpa og segir hann að kornþroskinn hafi verið meiri í henni en nokkurn tíma varð í fyrrahaust.
Þó við séum þetta snemma á ferðinni í ár var kornþroskinn meiri í fyrstu sendingunni frá okkur en hann náði nokkurn tíma að verða í fyrra, segir Róbert. Þetta lofar því góðu. Þeir Árni og Róbert hófu kornrækt fyrir fáum árum og þá á 10 ha lands, en hafa bætt við sig á hverju ári.