Útibússtjóri Arion banka á Akureyri lætur af störfum

Sigurður K. Harðarson
Sigurður K. Harðarson

Sigurður K. Harðarson útibússtjóri Arion banka á Akureyri hefur ákveðið að láta af störfum, hann staðfesti þetta við Vikudag í morgun.   Jónas Björnsson hefur tekið við af honum, en Jónas hefur starfað, sem svæðisstjóri bankans á norðausturlandi s.l. tvö ár.

Sigurður segir að í tengslum við þær skipulagsbreytingar, sem hafa verið gerðar starfsemi bankans á svæðinu, telji hann eðlilegt að nýr stjórnandi taki við rekstrinum á þessum tímapunkti.    Starfslokin séu í fullri sátt við bankann.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast