Útibú Landsbankans 110 ára - labbað um listaverkasafn!

Hér eru Helgi Vilberg og Birgir Björn Svavarssonútibússtjóri við mynd eftir Sissu í kjallaranum.
Hér eru Helgi Vilberg og Birgir Björn Svavarssonútibússtjóri við mynd eftir Sissu í kjallaranum.

Útibú Landsbankans á Akuryeri er 110 ára í ár og af því tilefni hefur verið mikið um dýrðir í bankanum í dag. Viðskiptavinum hefur verið boðið upp á veitingar auk þess sem starfsmenn hafa sýnt handverk af ýmsu tagi, einkum hannyrðir.  Helgi Vilberg hefur síðan boðið upp á skoðunarferðir um bankann og sagt frá þeim mikla fjölda listaverka sem bankinn á og hýsir hér og þar í húsnæði bankans. Alls eru skráð um 84 listaverk í útibúi bankans á Akureyri og eru þar á meðal ýmsar perlur, en segja má um listaverkasafn útibúsins að það sé mjög fjölbreytt. Helgi Vilberg þekkir þeta safn ágætlega en hann hefur iðulega farið með nemendur í skoðunarferðir um útibúið. Vikudagur slóst í för með fyrstu ferðinni sem farin var upp úr kl 13:0 í dag.

Leiðin lá fyrst um aðalsal bankans þar sem ýmis listaverk var að finna, því næst upp á 2. og 3. hæð og loks niður í kjallara þar sem glæsileg myndlist dró athyglina frá þungum og voldugum öryggishurðum peningageymslanna.

Helsta einkennismerkið í aðalsal Landsbankaútibúsins er þetta stóra mósaikverk eftir Gerði Helgadóttur sem ber heitð “verðskrúfa”. Helgi Vilberg beindi athygli manna að hringhreyfingunni sem einkennir verkið og bætti því við að hugtakið verðskrúfa hafi verið talsvert notað á árum áður einkum af verkalýðshreyfingunni  um víxhækkanir kaupgjalds og verðlags en orðið heyrist varla nú til dags. (Sjá mynd)

Annað verk sem setur sterkan svip á aðalsal útibúsins er þetta stóra málverk eftir Einar Hákonarson sem heitir Land og fólk. Einar er yngstur til að hafa fengið inngöngu í Myndlistarskóla hé rá landi og fór utan snemma og varð fyrir áhrifum af popplistamönnum. Hann þróaði síðan með sér mjög sérstakan stíl. (Sjá mynd)

Í andiri bankans sem snýr út að ráðhústorgi er að finna fallega mynd eftir Sigfús Halldórsson, tónskáld og myndlistarmann. Myndin er af Ráðhústorginu eins og það var fyrir nokkrum áratugum. (Sjá mynd)

Alexandra Kjuregej  myndlistarkona með meiri á tvær myndir á veggjum útibúsins og má hér sjá aðra þeirra. Þetta er mynd sem heitir “Silfurfoss” og er útsaumuð með tækni sem kallat application. (Sjá mynd)

Í stigagangi milli hæða má sjá nokkrar skemmtilegar myndir eftir Tolla sem Helgi Vilberg útskýrir að séu unnan með tækni sem kallast steinþrykk. (Sjá mynd)

Í andyri á jarðhæð við stigagng hefur verið máluð glæsileg veggmynd en það gerði málarameistarinn Aðalsteinn Vestmann. Að sögn Helga var þetta stundum gert hér áður fyrr að málarar máluðu listaverk á veggi. Myndin er þómerkt á veggnum og segir Helgi það sennilega skýrast af óþarflegri hófsemi Aðalsteins! (Sjá mynd)

Í kjallara útibús bankas eru líka nokkrar glæsilegar myndir við hlið voldugra peningaskápa. Meðal annars er þar að finna stórt málverk eftir Sissu.

Nýjast