Hrútur sem Kristján Stefánsson frá Gilhaga í Skagafirði hefur nýlega lokið við að stoppa upp vakti mikla lukku á jólaskemmtun á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Kristján sem gjarnan skemmtir heimilisfólki með harmonikuleik skildi nikkuna eftir heima að þessu sinni en sýndi þess í stað afrakstur af vinnu sinni nú á nýliðnu hausti, gæðahrút sem var í eigu Birgis Arasonar bónda í Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit.
Hrúturinn á fyrir höndum langt ferðalag, en bandarískur ullarkaupmaður, Robert Landau hefur fest á honum kaup og hyggst koma honum fyrir utan við ullarvöruverslun sína í Princton.
Gullbrekkuhrúturinn mun þar leysa af hólmi annan uppstoppaðan íslensknan hrút sem Landau keypti hér á landi fyrir um fjórum áratugum síðan, en honum var stolið á liðnum sumri og var mikið skarð fyrir skildi því hrúturinn sá hafði gengt því hlutverki að laða viðskiptavini inn í verslunina með góðum árangri.
Kristján hefur unnið við að smíða sérstakan kassa utan u m hrútinn svo að vel fari um hann í langferðinni, en hann verður sendur utan nú í byrjun nýs árs.