Það verður mikið um dýrðir hjá afmælisbarninu og skólabænum Akureyri 7. 21. maí þegar nemendur í leik- og grunnskólum bæjarins sýna afrakstur vetrarins á Uppskeruhátíð leik- og grunnskólanna. Verkin verður að finna víðs vegar um bæinn eða á hátt í tuttugu stöðum og má sem dæmi nefna að Leikskólinn Tröllaborgir sýnir á Bláu könnunni, Oddeyrarskóli í Flugstöðinni, Leikskólinn Sunnuból sýnir í Glerárkirkju og Glerárskóli sýnir í Lystigarðinum og á Icelandair Hotel.
Miðvikudaginn 16. maí verður svo sérstakur hátíðardagur með dagskrá í Hofi, á Ráðhústorgi og í göngugötunni/miðbænum. Segja má að Uppskeruhátíðin hafi hafist með því að settur var upp afmælisborði með áletruninni; Til hamingju Akureyri, neðst í Listagilinu. Borðinn er unninn í samvinnu allra grunnskóla bæjarins alls tíu talsins og allra leikskóla bæjarins alls 13 talsins. Borðinn var unninn þannig að allir leik- og grunnskólarnir fengu úthlutað einum staf eða að vinna skraut á borðann og var þetta svo í kjölfarið unnið með frjálsri aðferð eins og hverjum skóla hentaði, segir í fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar um sýningarstaði og hátíðardaginn miðvikudaginn 16. maí er að finna á upplýsingasíðu afmælisins á www.visitakureyri.is
http://www.visitakureyri.is/is/akureyri-150-ara