Unnu til verðlauna
Þrír ungir kvikmyndgerðarmenn frá Akureyri unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Laterna Magica sem fór fram í Vesterålen í Noregi. Þeir Þorsteinn Kristjánsson, Úlfur Logason og Kristján Blær Sigurðsson mættu með framlagið Þórgnýr og sigruðu þeir í flokknum 14 16 ára, en í þeim flokki voru 28 aðrar kvikmyndir.
Þórgnýr er grín-heimildamynd um 16 ára gamlan dreng sem telur sig vera fyrsta íslenska mafíósann. Í kvikmyndinni er Þórgný og föður hans fylgt eftir í nokkra daga og skyggnst er inn í viðburðarrík líf þeirra.
Laterna Magica er svæðisbundin kvikmyndahátíð fyrir börn og unglinga í Vesterålen sem fer fram í lok nóvember á hverju ári. Þetta var í 22. sinn sem hátíðin er haldin og er aðal markmið hennar að hvetja til kvikmyndagerðar meðal ungs fólks.