Unglinghljómsveit í miðbænum

Unglingahljómsveitin White Signal var á ferð í miðbæ Akureyrar í morgun og lék fyrir gesti og gangandi í Hafnarstætinu. White Signal er skipuð krökkum af höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 14- 17 ára oger kynjaskiptingin í sveitinni í samræmi við nýjan jafnréttisstaðal velferðarráðuneytisins - þrjár stúlkur og tveir drengir. White Signal vann símakosningu Rásar 2 í Músíktilraunum nú síðast og svo var að sjá sem ferðamenn af skemmtiferðaskipinu sem nú liggur við bryggju jafnt sem heimamenn hafi kunnað að meta leik hljómsveitainnar í góða veðrinu. Sveitin fer svo suður aftur í dag.

Nýjast