Undrandi á málflutningi tveggja bæjarfulltrúa

Oddur Helgi Halldórsson.
Oddur Helgi Halldórsson.

Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi og formaður framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar, lýsir undrun sinni á málflutningi bæjarfulltrúanna Ólafs Jónssonar og Guðmundar B. Guðmundssonar, í grein sem þeir skrifuðu í Vikudag í síðustu viku, en þeir séu yfirlýstir andstæðingar Dalsbrautar.  Í greininni gagnrýna þeir að bæjarráð hafi samþykkt tvær tillögur að breytingu á aðalskipulagi án þess að senda þær í hefðbundið kynningar- og athugasemdaferli.

Tillögurnar snúa báðar að götutengingum, annars vegar að tengingu væntanlegrar Dalsbrautar við Lundarskóla og íþróttasvæði KA og hins vegar tengingu Bröttusíðu við væntanlega framlengingu Borgarbrautar. “Fáar eða nokkrar framkvæmdir hafa verið jafn umdeildar í skipulagsmálum Akureyrarbæjar eins og lagning Dalsbrautar. Lagning hennar hefur mikil áhrif á næsta umhverfi sitt og það er mat okkar að sú skemmri skírn sem nú hefur verið samþykkt í bæjarráði sé ekki í anda skipulagslaganna,” segir m.a. í grein Ólafs og Guðmundar.
Oddur segir að öllum kæruatriðum sem komu fram vegna skipulags í tengslum við Dalsbraut hafi verið vísað frá af úrskurðarnefndinni. Þó hafi verið sett út á að það hafi vantað inn á gamalt skipulag, tengingu inn að KA-heimili og Lundarskóla. Þessar tengingar séu búnar að vera á skipulagi í áratugi og séu einu breytingarnar sem þurfi að gera núna. Oddur segir að Ólafur og Guðmundur hafi fengið nægan tíma til að kynna sér málið áður en það fór fyrir bæjarráð.

“Nú ef þeir hafa ekki skilið það, áttu þeir að afla sér betri upplýsinga. En að tala um að þetta sé meiriháttar mál og að það sé verið að troða einhverjum breytingum í gegn, er ósmekklegt af þeim félögum. Það getur hver sem er farið þarna upp eftir og virt fyrir sér þessar tengingar, þær verða óbreyttar en vantaði inn á aðalskipulagið. Að gefa í skyn að við séum að fara skemmri skírn í skipulagsmálum, er afbökun og mönnum ekki til sóma. Það er líka ástæða til að árétta að ákvörðunin um lagningu Dalsbrautar var samþykkt með 9 atkvæðum af 11 í bæjarstjórn. Það var því ekki mikill ágreiningur við afgreiðslu málsins. Ólafur og Guðmundur eru yfirlýstir andstæðingar framkvæmdarinnar en þeir eiga ekki að sá tortryggisfræum meðal fólks. Breytingin á skipulaginu er minni háttar og alls ekki efnisleg. Að gefa annað skyn er rangt og það er búið að samþykkja þetta allt saman,” sagði Oddur.

Nýjast