Umdeild biðskylda við Hamarstíg

Fulltrúar hverfisnefndar Brekku og Innbæjar á Akureyri eru ósáttir við fyrirhugaða biðskyldu á gatnamótum Helgamagrastrætis og Hamarstígs. Nefndin óttast aukinn umferðarhraða um Hamarstíg verði biðskyldan að veruleika.

Akstur um Hamarstíg er töluverður og mikil umferð gangandi vegfarenda um Helgamagrastræti þvert á Hamarstíg. Öryggi þeirra yrði í hættu,“ segir Sigmundur Kr. Magnússon formaður nefndarinanr. Hann segir nefndina ósátta með vinnubrögð bæjaryfirvalda í málinu.

throstur@vikudagur.is



 

Nýjast