Í lok nóvember var búið að gefa út 48.945 vegabréf á árinu og má því búast við að þau verði rúmlega 50 þúsund þegar tölur um útgefin vegabréf í desember liggja fyrir. Í fyrra voru útgefin vegabréf nærri 44 þúsund, þannig að aukningin er töluverð á milli ára.
Í nóvember á þessu ári voru gefin út 2.524 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 2.215 vegabréf í nóvember 2011. Fjölgunin er 14%.
Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Í mai árið 2006 styttist gildistími almennra vegabréfa úr 10 árum í 5 ár þegar örgjörva var bætt í vegabréfið.
karleskil@vikudagur.is