Rekstur Menningarhússins Hofs á Akureyri hefur gengið vonum framar og munu forsvarsmenn Menningarfélagsins Hofs sem sér um reksturinn skila rekstrarafgangi upp á eina og hálfa milljón króna til Akureyrarbæjar. Jafnframt skorar félagið á bæjaryfirvöld að sjá til þess að þetta fjármagn verði nýtt í framleiðslulistviðburða á svæðinu. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir segir að aðsókn á viðburði í Hofi hafi frá upphafi, haustið 2010 verið góð og yfir 300 þúsund gestir hafi sótti viðburði í húsinu.
Við erum virkilega ánægð með þetta fljúgandi start sem starfsemin hér í Hofi hefur fengið en það sýnir sig með þessari góðu aðsókn að gestir eru ánægðir með fjölbreytt framboð viðburða, segir Ingibjörg Ösp. Framundan á þriðja starfsári Hofs er fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá úr öllum listgreinum en vetrardagskráin verður kynnt í næstu viku. Reksturinn á fyrsta starfsári gekk vel og nú liggur fyrir að síðasta starfsár skilar rekstrarafgangi sem nemur einni og hálfri miljón króna. Þeim afgangi verður skilað til Akureyrarbæjar með áskorun um að stofnaður verði sjóður sem listamenn og framleiðendur listviðburða á svæðinu geti sótt í.
Samkvæmt núgildandi samningi við Akureyrarbæ er það ekki hlutverk Hofs að framleiða viðburði eða taka ákvarðanir um sérkjör sem einstaka aðilar eiga að njóta í húsinu. Hinsvegar telja forsvarsmenn Hofs það mikilvægt að listamenn og menningarstofnanir geti sótt um styrki eða stuðning til að standa fyrir viðburðum í Hofi. Þessi sjóður gæti orðið upphafið af slíku en það væri þá ekki á forræði Hofs að ákvarða hvernig yrði úthlutað úr honum.
Ingibjörg segir að skýra megi þessa góðu afkomu í rekstrinum meðal annars með góðri aðsókn sem hefur skilað meiri tekjum en áætlanir gerðu ráð fyrir. Aðsóknin hefur farið fram úr okkar björtustu vonum og á sama tíma hefur reksturinn slípast til. Það hefur vissulega verið mikið aðhald í rekstrinum og unnið er markvisst að því að halda niðri öllum kostnaði. Þetta er ánægjuleg niðurstaða sem er afrakstur samhents átaks og óeigingjarns framlags öflugs starfsmannahóps í Hofi og annara sem koma að rekstrinum með einum eða öðrum hætti. segir Ingibjörg Ösp.