Um 1400 kosið utan kjörstaðar

Um 1400 manns höfðu um hádegisbil í dag kosið utan kjörfundar í forsetakosningunum. Straumur fólk hefur heldur verið að aukast og bara fyrir hádegi í dag höfðu 57 manns komið að kjósa. Að sögn Björns Jósefs Arnviðarsonar sýslumanns er erfitt að segja til um hvort þetta er mikið eða lítið þar sem ekki hafa verið sambærilegar kosningar talsvert lengi, en til samanburðar má nefna að árið 1996 þegar síðast voru margir í framboði í forsetakosningum greiddu um 2.500 manns atkvæði utan kjörfundar og var það þá það mesta sem þekkst hafði.

Nýjast