Tryggvi Þór ofmat styrk sinn, segir prófessor

Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri segir að sigur Kristjáns Þórs Júlíussonar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins komi ekki á óvart.

 „Kristján hefur verið þingmaður kjördæmisins tvö síðustu kjörtímabil og auk þess verið bæjarstjóri á Eyjafjarðarsvæðinu í samtals 16 ár - 8 á Dalvík og 8 á Akureyri. Það hlýtur að vera gott bakland og veganesti inn í prófkjör - sérstaklega þegar litið er til þess að þetta bakland ætti að vera sterkast þar sem mannfjöldinn í kjördæminu er mestur. Þetta þarf ekki að koma á óvart,  keppinautur hans hafði alls ekki svona sterkt bakland. „

 Grétar Þór segir að niðurstaðan hljóti að styrkja stöðu Kristjáns Þórs í þingflokki Sjálfstæðisflokksins.

 „Svona afgerandi kosning gefur Kristjáni mjög sterka stöðu innan þingflokksins. Fari flokkurinn í ríkisstjórn hlýtur hann því að koma mjög sterklega til álita í ráðherraembætti.“

Tryggvi Þór ofmat styrk sinn

„Eins og hann stillti þessu upp virðist hann hafa lagt allt undir með að ná 1. sæti og annað sæti varla valkostur fyrir hann. Trúlega hefði hann getað komið til álita í ráðherraembætti, hefði hann sigrað í prófkjörinu. Þetta virðist því hafa verið lagt upp sem allt eða ekkert af hans hálfu,“ segir Grétar Þór Eyþórsson.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast