Tryggvi í viðræðum við Þór

Tryggvi Þór Guðmundsson. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is.
Tryggvi Þór Guðmundsson. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is.

Framherjinn Tryggvi Þór Guðmundsson hjá ÍBV hefur átt í viðræðum við Þór um að leika með liðinu næsta sumar í Pepsi-deild karla í knattspyrnu samkvæmt heimildum Vikudags. Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs sagði í samtali við Vikudag í dag að hann hafi rætt við Tryggva og þreifingar væru í gangi. Hann sagði þó ekkert vera í hendi.

Fari svo að Tryggvi leiki með Þór næsta sumar verður það mikill hvalreki fyrir félagið. Tryggvi er fyrrum landsliðsmaður og markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar karla en hann hefur skorað 143 mörk í 240 leikjum. Tryggvi hefur m.a. leikið með FH og ÍBV hér heima auk þess að spila sem atvinnumaður erlendis í mörg ár.

Nýjast