Í dag er Dagur íslenskrar tungu. Þess er minnst á margar hátt um allt land, enda er almennur áhugi á íslensku máli, töluðu og rituðu. Venjulega hefur í þessum þáttum hér í Vikudegi verið rætt um einkenni málsins og málfræðireglur, skyldleika og merkingu orða, orðatiltæki, mállýskur, mannanöfn, örnefni, málvernd og málrækt. Í tilefni Dags íslenskrar tungu verður brugðið út af þessari venju og lagðar fyrir lesendur spurningar um málvernd og málrækt. Svörin verða birt síðar, auk þess sem þau gætu mótað efni og umfjöllun í næstu þáttum.
Svarendur eru í upphafi beðnir að gera örlítla grein fyrir sjálfum sér. Í fyrsta lagi hvort um er að ræða (1) karl eða konu, (2) hvert er fæðingarár svaranda, (3) hver er menntun og/eða starf og (4) hvaðan af landinu hann/hún er, þ.e. Austfirðingur, Norðlendingur, Sunnlendingur, Vestfirðingur, Vestlendingur eða Reykvíkingur. Ekki er beðið um nafn eða heimilisfang.
Spurningarnar eru níu talsins. Svörin þurfa ekki að vera löng, jafnvel aðeins eitt orð, þótt gjarna megi skrifa lengri svör, ef nauðsynlegt er talið. Senda skal svörin á netfangið hér að ofan: tryggvi.gislason@simnet.is ellegar með landpóstunum til Tryggva Gíslasonar/ Blásölum 22, 804/ IS 201 Kópavogi fyrir 15. desember næst komandi.
Spurningar eru þessar:
1. Við hvað telur þú að átt sé, þegar talað um málvernd og málrækt?
2. Hvernig telur þú, að málrækt eða málvend væri best sinnt: a) með skólakennslu, b) á heimilum, c) nýyrðasmíð, d) skipulegum aðgerðum til þess að vernda tunguna gegn erlendum áhrifum, e) með lestri góðra bóka, f) með málræktarþáttum í blöðum, útvarpi og sjónvarpi eða á einhvern annan hátt
3. Telur þú mikilsvert, að fólk vandi málfar sitt og ef svo er, hvers vegna?
4. Hvað felst í því að þínum dómi í orðunum að vanda málfar sitt? Er það með því að beygja orð rétt, nota orð og orðatiltæki í réttri merkingu, bera málið eðlilega fram, nota innlend orð sletta ekki, tala hægt og skýrt, vera góður í stafsetningu eða eitthvað annað?
5. Telur þú að hægt sé að tala um rétt mál og rangt?
6. Ef þú telur unnt að tala um rétt mál og rangt mál, hvað er þá rétt mál í þínum huga?
7. Telur þú að málfar segi eitthvað um fólk?
8. Telur þú að íslenska hafi sérstöðu meðal tungumála í Evrópu?
9. Hvar á landinu finnst þér talað fallegast mál?
Ekki þarf að svara öllum spurningunum, þótt það sé æskilegt.