Það er kominn sá árstími að treflar rjúka út. Við erum bæði með klassíska og grófa trefla. Þetta ásamt húfum selst eins og heitar lummur, segir Ragnar Sverrisson, kaupmaður og eigandi JMJ fataverslunnar á Akureyri, um vinælustu vörurnar í dag. Þá segir Ragnar að slaufur séu sérstaklega vinsælar hjá yngri kynslóðinni um þessar mundir.
Það er mikil aukning í því. Við höfum um 30 gerðir af slaufum hérna hjá okkur og strákar eru að velja allar tegundir. Eldri mennirnir eru hins vegar ekki mikið fyrir slaufurnar, en þetta virðist vera inni hjá ungu mönnunum í dag.
Hvítar skyrtur alltaf vinsælar
Ragnar segir einnig að hinar hefðbundnu hvítu skyrtur njóti alltaf vinsælda. Þær eru klassískar og það sama má segja um svörtu skyrturnar. Þetta eru alltaf vinælustu litirnir í skyrtunum. Svo eru köflóttar skyrtur að komast í tísku núna og einnig aðrir litir, t.d. brúnt, grátt og vínrautt sem er það nýjasta. Þetta er í tísku núna en hún gengur alltaf í bylgjum, segir Ragnar, en hann hefur verið viðriðinn fatabransann í 50 ár og þekkir ágætlega til.
Lognið á undan storminum
Ragnar segir ágætt að gera þessa dagana en það styttist óðum í jólatörnina. Hún hefst yfirleitt um miðjan nóvember þannig að þetta er eiginlega lognið á undan storminum. Þá fer fólk úr nágrannabyggðunum að koma að versla ef það er góð færð. Þá verða helgarnar verulega góðar og um mánaðarmótin næstu hefjast lætin fyrir alvöru, segir Ragnar.