Tónlistarveisla á Græna hattinum

Græni hatturinn.
Græni hatturinn.

Það verður þétt dagskrá um verslunarmannahelgina á Græna hattinum og nóg í boði fyrir unnendur góðrar tónlistar. Veislan byrjar strax í kvöld kl. 21.00 með tónleikum þjóðlagasveitarinnar Brother Grass. Hvanndalsbræður hefja formlega dagskrá helgarinnar með tónleikum annað kvöld, fimmtudag, kl. 22:00. Á föstudagskvöldið stíga Vinir Akureyrar og Dúndurfréttir á stokk og spila lög eftir sveitir á borð við Kansas, Deep Purple, Pink Floyd og Led Zeppelin og hefjast tónleikarnir kl. 23:00.

Á sama tíma á laugardagskvöldinu sér hljómsveitin Hjálmar um fjörið. Það verður svo akureyrska hljómsveitin Bravó sem slær botninn í tónlistarveisluna með tónleikum á sunnudagskvöldinu og hefjast herlegheitin kl. 23:00. Forsala er hafin í Eymundsson.

Nýjast