Við höfum sannarlega fundið fyrir þessari komu hans og það er óhætt að segja að þetta sé góð byrjun á sumrinu hjá okkur, segir Kristinn Tómason, stöðvarstjóri hjá Höldi á Akureyri. Eins og flestum ætti að vera orðið nokkuð ljóst er bandaríski kvikmyndaleikarinn og stórstjarnan Tom Cruise staddur hér á landi vegna töku á nýjustu mynd sinnar og hefur dvalið á Norðurlandi síðustu daga, þar sem tökur fara fram. Aðstandendur myndarinnar hafa leigt út bíla fyrir starfsfólkið hjá Höldi, sem hefur haft í mörgu snúast vegna þessa.
Það hefur verið mikið rennsli hjá okkur vegna Cruise og við kvörtum ekki yfir þessu, segir Kristinn.
Aðspurður vill hann ekki gefa upp nákvæma tölu á fjölda bíla sem leigðir hafa verið út en staðfestir þó að það séu nokkrir tugir. Það verður hins vegar ekki framhald af þessu góðæri, á vegum Tom Cruise í það minnsta, þar sem fréttir herma að dagurinn í dag sé síðasti tökudagur hér norðan heiða. Mér skilst að okkar bílar eigi að koma inn á morgun, segir Kristinn.