Tíu starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri í sóttkví

Sóttkví starfsfólksins hefur ekki valdið alvarlegri röskun á starfi sjúkrahússins en hugsanlega þarf…
Sóttkví starfsfólksins hefur ekki valdið alvarlegri röskun á starfi sjúkrahússins en hugsanlega þarf þó að fresta einstaka aðgerðum.

Tíu starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp á vísindadegi sjúkrahússins sl. fimmtudag tengt utanaðkomandi fyrirlesara.

Hildigunnar Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, segir í svari við fyrirspurn blaðsins að fyllstu varúðar hafa verið gætt en talið öruggast að nokkrir færu í sóttkví. „Þeir sem eru í sóttkví fara í skimun á fimmtudag og geti komið aftur til starfa um leið og neikvæð niðurstaða liggi fyrir,“ segir Hildigunnur.

Hún segir sóttkví starfsfólksins hafi ekki valdið alvarlegri röskun á starfi sjúkrahússins, „en hugsanlega þarf þó að fresta lítillega einstaka aðgerðum.“ 

Höfuðborgarsvæðið skilgreint sem rautt svæði

Starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri má nú ekki fara til höfuðborgarsvæðisins, sem núna er skilgreint sem rautt svæði, nema brýna nauðsyn beri til. Þurfi starfsfólk sjúkrahússins að fara til höfuðborgarsvæðisins ber því að fara í svokallaða sóttkví C og þarf þá að bera grímu í tvær vikur eftir að það mætir aftur til starfa og gæta tveggja metra reglunnar. 


Athugasemdir

Nýjast