Tíu KA-menn knúðu fram sigur gegn Þór

KA hafði betur gegn Þór í uppgjöri Akureyrarliðanna í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld, 3-2, en leikið var á Akureyrarvelli. Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik gerðust hlutirnir í þeim seinni sem var frábær skemmtun. KA lék einum manni færri síðustu sjö mínútur leiksins en það kom ekki að sök og Darren Lough reyndist hetja liðsins er hann skoraði sigurmark leiksins tveimur mínútum fyrir leikslok. Það voru hins vegar gestirnir í Þór sem skoruðu fyrsta mark leiksins og það gerði Ármann Pétur Ævarsson á fyrstu mínútu seinni hálfleiks.

Haukur Hinriksson jafnaði metin fyrir KA aðeins fimm mínútum síðar og Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir með gullfallegu marki skömmu síðar. Þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka fékk Þór dæmda vítaspyrnu og Kristinn Þór Björnsson skoraði örugglega úr spyrnunni. Staðan 2-2. Guðmundur Óli Steingrímsson hjá KA gerði sig sekan um gróft brot er hann tæklaði Inga Frey Hilmarsson niður sjö mínútum fyrir leikslok og var rekinn af velli. Tíu KA-mönnum tókst hins vegar að skora sigurmark leiksins og það var umræddur Lough er hann skoraði með skalla eftir sendingu frá Jóhanni Helgasyni úr aukaspyrnu og tryggði KA-mönnum afar dýrmæt stig.

KA lyftir sér upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum og fer í átta stig. Þór hefur þrettán stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Fjölnis.

Nýjast