Tíu Íslandsmeistaratitlar til UFA

Kolbeinn Höður Gunnarsson vann tvo Íslandsmeistaratitla á MÍ 15-22 ára. Mynd: Þórir Tryggvason.
Kolbeinn Höður Gunnarsson vann tvo Íslandsmeistaratitla á MÍ 15-22 ára. Mynd: Þórir Tryggvason.

Lið UFA varð í fimmta sæti í stigakeppni félaga á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum sem fram fór á Sindravöllum í Höfn í Hornafirði sl. helgi. Þá kom einnig fjöldi Íslandsmeistaratitla í hús hjá UFA en keppendur félagsins voru sex talsins og unnu samtals til tíu Íslandsmeistaratitla. Alls kepptu 125 manns á mótinu frá þrettán félögum.

 Ásgerður Jana Ágústsdóttir og Kolbrún Helga Hansen urðu báðar þrefaldir Íslandsmeistarar. Ásgerður sigraði í spjótkasti 16-17 ára, í hástökki og í kringlukasti í flokki 16-17 ára. Kolbrún sigraði í hástökki 20-22 ára, 800 m hlaupi og í 1500 m hlaupi. Kolbeinn Höður Gunnarsson varð tvöfaldur meistari en hann sigraði í 100 og 200 m hlaupi í flokki 16-17 ára.

Þá varð Stefán Þór Jósefsson Íslandsmeistari í þrístökki 18-19 ára og Agnes Eva Þórarinsdóttir varð Íslandsmeistari í 400 m hlaupi 18-19 ára. Einnig unnu keppendur UFA til fjölda silfur-og bronsverðlauna á mótinu.

Nýjast