Íþróttafélagið Draupnir frá Akureyri vann til fjölda verðlauna á afmælismóti Júdófélags Reykjavíkur sl. helgi. Draupnir sendi 36 krakka á mótið í aldursflokkum 8-14 ára en 150 keppendur frá átta félögum tóku þátt. Þetta er fyrsta júdómótið sem Draupnir tekur þátt í eftir að öll júdóstarfssemi á Akureyri færðist yfir til félagsins frá KA. Óhætt er að segja að krakkarnir í Draupni hafi staðið sig frábærlega en þau unnu til tíu gullverðlauna, tólf silfurverðlauna og sjö bronsverðlauna.
Þessi frammistaða skilaði Draupni í efsta sæti í keppni á milli félaga. JR varð í öðru sæti og UMFN í því þriðja.