Titillinn bíður um sinn

ÍBV og Þór/KA skildu jöfn, 1-1, er liðin áttust við á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Þór/KA hefði getað tryggt sér titilinn með sigri og hagstæðum úrslitum úr leik Stjörnunnar og Aftureldingar, en þar sem Stjarnan er að vinna sinn leik þarf Íslandsmeistaratitillinn að bíða um sinn. Þegar tvær umferðir eru eftir og sex stig í pottinum er Þór/KA í efsta sæti deildarinnar með 39 stig en Stjarnan er í öðru sæti með 35 stig. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir í kvöld á 36. mínútu en Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði með marki af stuttu færi í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

 


Nýjast