Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samtök fjármálafyrirtækja hafa skrifað undir samning um átak og aðgerðir til að efla fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að efla þessa fræðslu í skólakerfinu markvisst með hliðsjón af gildandi lögum og aðalnámskrám í samráði við ýmsa aðila. Tveir norðlenskir grunnskólar og einn framhaldsskóli taka þátt í þessu verkefni; Hafralækjarskóli, Litli-Laugaskóli og Menntaskólinn á Akureyri.
Bundnar eru miklar vonir um að tilraunakennslan leiði í ljós hvar og hvernig þessari fræðslu verði best fyrir komið í náminu þannig að tryggt sé að allir nemendur fái notið hennar í framtíðinni. Gerð verður könnun í upphafi og lok tilraunakennslunnar á fjármálalæsi nemenda og niðurstöðurnar nýttar til þess að skipuleggja kennslu á þessu sviði til framtíðar.
Í nýjum aðalnámskrám er læsi skilgreint í víðum skilningi og innan þess hugtaks er fjármálalæsi.
Markmiðið með kennslunni er að fræða ungmenni um fjármál og efnahagsmál til þess að þau verði hæfari til að takast á við eigin fjármál og skilja betur efnahagskerfi heimsins.