Tilraunaholurnar mældar á ný

Á næstu vikum verða tilraunaholurnar sem boraðar voru á sorphaugunum á Glerárdal á síðasta ári, mæld…
Á næstu vikum verða tilraunaholurnar sem boraðar voru á sorphaugunum á Glerárdal á síðasta ári, mældar á ný.

Þessa dagana er unnið að því að mæla á ný hauggasið í tilraunaholunum átta sem boraðar voru  á sorphaugunum á Glerárdal á síðasta ári. Í ljós hefur komið að áður gefnar forsendur fyrir vinnslu hauggass á sorphaugunum hafa breyst verulega. Endurmetið spálíkan sýnir að minna magn er hægt að vinna en áður var áætlað. Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku segir að hver hola verði mæld í viku í senn. Búið er að mæla eina holu og segir Helgi að sú hola sé ekki langt frá mælingunum í fyrra.

 “Þannig að við erum bjartsýnir en líkast til er þarna ekki eins mikið magn og spáð var.” Helgi segir að samþykkt hafi verið á stjórnarfundi í þar síðustu viku, að ekki yrðu teknar frekari ákvarðanir fyrr en mælingar á öllum holunum átta lægju fyrir. “Við munum engu að síður halda áfram að vinna þau verkefni sem hægt er að vinna án þess að leggja út í kostnað. Við erum ekkert að hætta við verkefnið.”

Eftir að Norðurorka kynnti áætlanir sínar um uppbyggingu metanvinnslustöðvar nú í vor rýndu sérfræðingar Umhverfisstofnunar í áðurnefnt spálíkan og höfðu uppi efasemdir um forsendur þess. Í ljósi þessarar rýni yfirfóru sérfræðingar Mannvits spálíkanið og forsendurnar. Niðurstaðan er sú að vinnanlegt magn hauggass er nú  talið minna en áður var áætlað. Eins og mál standa nú er vinnanlegt magn samkvæmt endurskoðuðu spálíkani nægjanlegt til þeirrar vinnslu sem Norðurorka áætlaði, þ.e. fyrir 6-700 fólksbílaígildi, en stækkunarmöguleikar vart fyrir hendi og því áhættan og óvissan fyrir Norðurorku meiri en áður var talið.

Helgi segir að þessi niðurstaða sé vissulega áfall. Mikilvægt sé að verkefnið verði arðbært með þeim hætti að þar fari saman hagsmunir allra svo sem að dregið sé úr gróðurhúsaáhrifum, hagsmunir neytenda á Akureyri með mögulegri lækkun á eldsneytiskostnaði og að verkefnið standi undir sér fjárhagslega til lengri tíma litið.  Endurmat á verkefninu þurfi sannanlega að leiða til þeirrar niðurstöðu að óvissa sé sem minnst og hún sé ásættanleg. “Að þessu mati verður unnið á næstu vikum og óskandi að niðurstaðan verði áfram jákvæð þrátt fyrir breyttar forsendur.”

Eins og fram hefur komið samþykkti stjórn Norðurorku í vor að reisa og reka hauggasstöð til framleiðslu á metani úr gömlu soprhaugunum. Talið var að hægt yrði að vinna um 1,5 milljón normalrúmmetra af hauggasi í 25 ár og að áætlað metan væri um 55-60% af hauggasinu. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina var áætlaður um 300 milljónir króna.

 

Nýjast