Kristján Þór Júlíusson skrifar:
Á morgun, föstudag, verður skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga. Langþráðum áfanga í samgöngumálum Norðlendinga og allra landsmanna verður þar með náð.
Ég hef þá bjargföstu trú að Vaðlaheiðargöng séu þjóðþrifamál og þó svo að um þessa framkvæmd hafi gustað verulega í sölum Alþingis og víðar, er ég sannfærður um að þegar frá líður muni koma vel í ljós hvaða gildi Vaðlaheiðargöng hafa til eflingar byggða á Mið-Norðurlandi.
Vaðlaheiðargöng hafa lengi verið til umræðu og leiðin að undirskriftinni á morgun hefur oft og tíðum verið þyrnum stráð. Ég minnist þess að göngin kom fyrst upp í umræðunni í bæjarstjórn Akureyrar árið 1998 í kjölfar áherslu atvinnumálanefndar bæjarins á að þetta mál yrði skoðað ofan í kjölinn. Hlutafélagið Greið leið ehf. var svo stofnað árið 2003 sem undirbúningsfélag fyrir gerð jarðganga undir Vaðlaheiði og hlutafélagið Vaðlaheiðargöng var síðan sett á stofn árið 2011.
Miklar tafir hafa orðið á því koma verkefninu í höfn. Ekki ætla ég að rekja þá sögu hér, en vil miklu frekar fagna því að loksins skuli landi hafa verið náð með verkefnið, um leið og ég vil þakka öllum þeim fjölmörgu sem komið hafa að málinu í gegnum árin. Og þó svo að alþingismenn hafi greint á um leiðir að settu marki, þá er niðurstaðan fengin. Í öllum meginatriðum hefur verið góð samstaða þingmanna Norðausturkjördæmis um málið og það ber að þakka.
Bættar samgöngur eru óumdeilt einn af grunnþáttunum í því að styrkja byggð í landinu. Allir njóta góðs af, hvort sem það er í atvinnulegu tilliti, á menningarsviðinu eða öðru.
Á það hefur ítrekað verið bent að Vaðlaheiðargöng leysa af hólmi einn af fjölfarnari og erfiðari fjallvegum landsins, Víkurskarð, sem ítrekað lokast yfir vetrarmánuðina vegna óveðurs og fannfergis. Þetta hefur hvað eftir annað komið í ljós í vetur.
Vaðlaheiðargöng eru langþráð og kærkomin samgöngubót. Ef allt gengur að óskum verður göngin fullbúin síðla árs 2016.
Ég vil óska okkur öllum til hamingju með þennan mikla og góða áfanga.
Höfundur er alþingismaður Norðausturkjördæmis.