Þýsku hjónin Karl-Werner og Gisela Shculte vilja gefa Akureyrarbæ merkt safn landabréfa af Íslandi, þar sem yngsta landakortið er frá því um lok 18. aldar. Stjórn Akureyrarstofu leggur til að Akureyrarbær þiggi gjöfina og að safnið verði sýnt yfir sumartímann í Minjasafninu á Akureyri fyrstu 2-3 árin.
Hjónin sendu bænum fyrirspurn um málið árið 2003, en því var ekki lokið og því endurvakið.
Eins og fyrr segir leggur stjórn Akureyrarstofu til að gjöfin verði þegin og mun bæjarstjórn taka afstöðu til málsins síðar.