Þverpólitískur fögnuður

 Mikil ánægja er meðal þingmanna kjördæmisins með niðurstöðuna á þingi um fjármögnun Vaðlaheiðaganga. Andstaðan við göngin reyndist þegar til kom minni en virtist um tíma og svo fór að frumvarpið um fjármögnun var samþykkt með afgerandi meirihluta. Búið er að semja um viðbótarfresti við aðalverktakann  en ýmsir lausir endar eru eftir áður en hægt er að fullyrða um hvenær framkvæmdir geta hafist.

Steingrímur: Vonir glæðast um uppbyggingu
“Ég er ákaflega ánægður með að fjármögnunarþáttur málsins sé nú loks í höfn. Þetta reyndist nokkuð erfiðara en ég átti von á í ljósi þess að mér hefur fundist þessi framkvæmd tala fyrir sig sjálfa og standa svo sterkt af sínu eigin ágæti. En þrátt fyrir ákveðinn mótbyr sem málið fékk þá reyndist samt sterkur meirihluti fyrir því á þingi þegar það fór loks í gegn. Ég tel að ný blási byrlega fyrir málinu og vonandi verður hægt að klára allan undirbúning og alla pappírsvinnu á næstu vikum þannig að skuldbindandi sé og lagt verði af stað fljótlega,” segir Steingrímur J Sigurðsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og formaður Vg. Hann segir það einnig gleðilegt að samtímis komi fréttir sem auka bjartsýni á að það styttist í uppbygginguna í Þingeyjarsýslum og “þá eiga menn nú kannski eftir að sakna þess að gögnin skuli ekki hafa verið komin fyrr!” segir Steingrímur

Höskuldur: Margt sagt sem ekki stenst
Ég vil óska Norlendingum og landsmönnum öllum  til hamingju meðað þetta skulu vera komið í gegn,” segir Höskuldur Þórhallsson um niðurstöðu Alþingis um vaðalaheiðagöng.ég held að þegar upp verður staðið muni þetta verða talin ein miklvægasta samgögnubót landsins og muni styrkja Eyjafjörð og  Þingeyjarsýslur sem eitt atvinnusvæði. Það hefuer margt verið sagt um göngin sem stenst ekki skoðun eins og það að þau myndu standa öðrum verkefnum fyrir þrifum. Annað hefur komið á daginn eins og sjá má a flýtingu Norðfjarðarganga og Dýrafjarðarganga

Kristján Þór: Ánægjulegur áfangi
“Þetta er gríðarlega ánægjulegur áfangi á langri leið – þökk sé samstöðu Norðanmanna. Vaðlaheiðargöng komust fyrst inn á samgönguáætlun árið 2008 eftir 10 ára vinnu Norðlendinga að því marki. Nú liggur fyrir samþykki fyrir að hefja verkið. Vonandi ganga samningar Vaðlaheiðarganga, fjármálaráðuneytis og verktakans hratt og vel þannig að vinna við gangagerðina geti hafist sem fyrst,” segir Kristjá Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfsætiðsflokksins.

Kristján Möller: Keyri í gegn 2016!
“Ég er rosalega ánægður og glaður með að gamalt baráttumál er komið í höfn. Framkvæmdir munu nú hefjast innan skamms og fara á fulla ferð fyrir veturinn og skapa mikla vinnu á verktímanum. Bíð spenntur eftir því að geta keyrt í gegn um göngin haustið 2016. Þá verður hátíð í bær. Allt er gott sem endar vel, segir kristján Möller þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum samgögnuráðherra.

 

 

Nýjast