Uppgjör fyrstu sex mánuði ársins hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri liggur nú fyrir og er kostnaður um 26 milljónir umfram fjárveitingu eða 1,2%. Þetta kemur fram í pistli Bjarna Jónassonar forstjóra sem hann skrifar á heimasíðu FSA í dag og segir hann að þessi niðurstaða komi ekki á óvart í ljósi þeirrar aukningar sem verið hefur á starfseminni. Samanborið við sama tíma á síðasta ári hefur sjúklingum fjölgað um 12%, fæðingum um 35%, slysadeildarkomum um 7,5% og stöðug aukning hefur verið í komum á dag- og göngudeildir. Á dag- og göngudeild lyflækninga sem m.a. sinnir meðferð krabbameinssjúklinga hefur starfsemin aukist um 26%. Þá hefur rannsóknum heilt yfir fjölgað.
Bjarni segir mikið hafa verið að gera það sem af er sumri og álag á deildum oft á tíðum mjög mikið. Hann segir ennfremur að sjúkrahúsið verði að fá aukna fjárveitingu til að geta haldið út sömu þjónustu.
Við höfum notið góðs af því góða fólki sem hefur komið inn í sumarafleysingar og unnið gott starf með góðum stuðningi frá reyndari starfsmönnum. Aukin starfsemi sem drifin er áfram af bráðastarfsemi og hallarekstur þrátt fyrir mikinn niðurskurð og hagræðingu undanfarin misseri segir okkur að ekki er lengur borð fyrir báru. Setja verður aukið fjármagn í reksturinn svo unnt sé að halda úti nauðsynlegri sjúkrahúsþjónustu, viðhalda þekkingu og endurnýja nauðsynlegan tækjabúnað. Komi ekki til aukinna fjárveitinga verðum við nauðbeygð að hætta að veita einhverja þá þjónustu sem veitt er í dag, segir Bjarni.