Þrjú rauð spjöld og jafnt á Þórsvelli

Þór og ÍR skildu jöfn, 2-2, á Þórsvelli í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Þrjú rauð spjöld fóru á loft en gestirnir enduðu níu á vellinum. ÍR-ingar náðu forystunni á 43. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu frá Axeli Kára Vignissyni. Jóhann Helgi Hannesson leikmaður Þórs fékk svo beint rautt spjald fyrir brot tveimur mínútum síðar. Það tók ÍR aðeins tvær mínútur að bæta við marki í seinni hálfleik og það var Andri Björn Sigurðsson sem skoraði af stuttu færi. Staðan 2-0. Þórsarar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn andartaki síðar með marki frá Sveini Elíasi Jónssyni.

Á 52. mínútu fékk Þór dæmda vítaspyrnu þegar markvörður ÍR braut á sóknarmanni Þórs og var rekinn af velli. Kristinn Þór  Björnsson skoraði úr vítinu, staðan 2-2 og jafnt í liðum. Marteinn Gauti Andrason hjá ÍR fékk tvö gul spjöld með fimm mínútna millibili og þar með rautt spjald á 58. mínútu. Þórsurum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og lokatölur 2-2.

Þórsarar fara í þrettán stig og deila toppsætinu með Víkingi Ólafsvík en ÍR hefur tíu stig í fimmta sæti.

Nýjast