Verslanir Símanns, 66° Norður og Levi´s munu á næstunni hætta rekstri á Glerártorgi á Akureyri. Síminn mun opna verslun í miðbæ Akureyrar en þar er einnig 66° Norður með verslun og mun vera áfram. Levi´s mun hins vegar alfarið loka.
Samkvæmt upplýsingum Vikudags er há leiga m.a. ástæða þess að verslanirnar þrjár fara. „Við hjá Símanum hlökkum mjög til að fara í nýtt húsnæði og teljum okkur ná að sinna viðskiptavinum okkar enn betur,“ segir Gestur Örn Arason, verslunarstjóri hjá Símanum á Akureyri.
„Margir hafa ekki gert sér grein fyrir því að Síminn á Glerártorgi er rekinn á tveimur hæðum, en við verðum hins vegar á einni hæð á Strandgötu. Við verðum sýnilegri í bænum, lækkum rekstrarkostnaðinn með minni verslun og getum hagað opnunartímanum eins og hentar,“ segir Gestur.
Óvíst er hvaða verslanir koma í þau rými sem losna á Glerártorgi.