Þrír titlar til UFA

Þrír Íslandsmeistaratitlar komu í hús hjá UFA á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum en mótið fór fram á Laugardalsvelli sl. helgi. Raguel Pino sigraði í flokki 11 ára í 60 m hlaupi pilta, Berglind Björk Guðmundsdóttir sigraði í flokki 14 ára stúlkna í 800 m hlaupi og stúlkurnar í flokki 14 ára urðu Íslandsmeistarar í 4x100 m boðhlaupi. Sveitina skipuðu þær Selma Líf Þórólfsdóttir, Berglind Björk Guðmundsdóttir, Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir og Bríet Ósk Ólafsdóttir. UFA hafnaði í fjórða sæti í heildarstigakeppninni af nítján félögum en auk þriggja Íslandsmeistaratitla vann félagið til fjölda silfur-og bronsverðlauna á mótinu.

Nýjast