Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en töluverður fjöldi fólks er í bænum á hátíðinni Ein með öllu sem fram fer um verslunarmannahelgina. Þrír voru vistaðir í fangaklefa, einn eftir minniháttar líkamsárás og tveir vegna ölvunar. Um sex leytið í morgun var einn handtekinn við innbrot en lögreglan var fljót á staðinn og kom í veg fyrir að þjófurinn tæki ránsfenginn með sér.