Þriggja marka tap í Tékklandi

Þórsarar töpuðu með þremur mörkum gegn engu er liðið sótti tékkneska úrvalsdeildarliðið Mlada Boleslav heim í kvöld í fyrri leik liðanna í annarri umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu. Heimamenn skoruðu tvö markanna í fyrri hálfleik en þriðja markið kom tíu mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 3-0 og ljóst að erfitt verkefni býður Þórsara að vinna muninn upp þegar liðin mætast á Þórsvelli eftir viku.

Nýjast