Þórudagur á sunnudaginn

Þóra Arnórsdóttir.
Þóra Arnórsdóttir.

Stuðningsfólk Þóru Arnórsdóttur, forsetaframbjóðanda, ætlar að taka höndum saman sunnudaginn 24. júní og sameinast um að halda Þórudag um allt land. Stefnt er að því að gera hann að degi gleði og samstöðu. Dagurinn byggist á því að haldnir verða viðburðir út um land allt tileinkaðir Þóru og er markmiðið að stuðningsfólk komi  saman og njóti dagsins í hennar nafni. Allir geta tekið þátt í deginum, bæði með því að skrá inn viðburð á heimasíðu framboðsins (thoraarnors.is) eða með því að taka þátt í einhverjum þeirra viðburða sem í boði verða.

Nú þegar er búið að skrá fjölda viðburða. Garðar verða slegnir fyrir nágranna, farið verður í Þórugöngu á Esjuna og að Lóndröngum, fluguvinafélagið ætlar að hnýta Þóruflugu, bakaðar verða Hnall-Þórur um allt land og varðeldar kveiktir í nafni Þóru. Einnig er búið að skrá fjölda fjölskylduviðburða þar sem farið verður í fótbolta, boðhlaup og annað skemmtilegt, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast