Þórsarar misnotuðu vítaspyrnu í markalausu jafntefli gegn Fjölni

Þórsarar fóru illa að ráði sínu er þeir mættu Fjölnismönnum í kvöld í lokaleik 9. umferðar 1. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu en leikið var á Fjölnisvelli. Heimamenn misstu markvörð sinn, Martein Örn Halldórsson, af velli með rautt spjald strax á 3. mínútu en Gunnar Sigurðsson markvörður, sem kom inn á kjölfarið, varði vítið sem dæmt var á Martein, frá Kristni Þór Björnssyni. Fjölnismenn héldu hreinu að sem eftir lifði leiks og kræktu í eitt stig, líkt og gestirnir úr Þór. Fjölnir er því áfram í 2. sæti deildarinnar og Þór í því fjórða. Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs sagði það vonbrigði að hafa ekki náð að landa sigri, þar sem liðið var manni fleiri nánast allan leikinn, auk þess sem leikmenn hans hafi fengið færi til að þess að koma inn marki. Páll sagði það jákvætt að hafa haldið hreinu en miðað við gengi liðsins í deildinni að undanförnu, hefði eitt stig á erfiðum útivelli þótt gott fyrirfram. Því hafi þrátt fyrir allt verið betra að fá eitt stig en ekki neitt.

Nýjast