Það verður stór stund á Þórsvellinum í kvöld, þegar 1. deildar lið Þórs í knattspyrnu mætir írska úrvalsdeildarliðinu Bohemian FC í forkeppni Evrópudeildar UFEA. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Dublin í síðustu viku, í fyrsta Evrópuleik Þórs frá upphafi. Leikurinn í kvöld, sem hefst kl. 18.30, er því fyrsti heimaleikur Þórs í Evrópukeppni og ríkir mikil eftirvænting meðal stuðningsmanna félagsins. Sveinn Elías Jónsson fyrirliði Þórs segir leikurinn í kvöld leggist mjög vel í sig, sem og aðra leikmenn liðsins. Við fórum út með það sem fyrsta markmið að halda markinu hreinu, það gekk eftir, sem gerir það að verkum að þetta getur orðið spennandi leikur hér heima. Við vitum líka betur hversu öflugt lið þetta er en fyrir fyrri leikinn rendum við nokkuð blint í sjóinn. Þetta er samt ekkert sterkara lið en við vorum að spila við í fyrrasumar og á góðum degi eigum við að geta unnið það. En ef við gleymum okkur, er þetta samt lið sem getur verið fljótt að refsa. Þannig að við þurfum allir að eiga toppleik og okkur þarf að ganga betur við markaskorun en í undanförnum leikjum. Þá gæti þetta dottið okkar megin.
Flott stemmning og aðstæður
Aðspurður sagði Sveinn að það hafi verið rosalega skemmtilegt að leiða Þórsliðið til leiks í fyrsta Evrópuleik félagsins, á Írlandi í síðustu viku. Það var virkilega góð stemmning þarna úti og ýmsar reglur í gangi sem við erum ekki vanir. En þetta var samt bara fótbolti sem við vorum að spila og þótt andstæðingurinn tali ekki sama tungumál og við, þá eru þetta bara strákar eins og við. En það var virkilega skemmtilegt að leika þarna á frábærum velli, þar sem var flott stemmning og flottar aðstæður, sagði Sveinn.
Hann vonast eftir góðum stuðningi á heimavelli í kvöld. Ég trúi ekki öðru en að það verði uppselt á völlinn og að við fáum alvöru stuðning. Það er heilmikð í húfi fyrir klúbbinn og það yrði rosalega gaman að komast áfram í næstu umferð. Við erum hvergi bangnir og lítum á þetta sem mikinn bónus og forréttindi að fá að taka þátt í þessari keppni. Þeir eru margir leikmennirnir sem spila í okkar klassa en komast aldrei í Evrópukeppni. Þeir eru líka margir Þórsararnir sem hefðu viljað spilað Evrópuleik fyrir félagið en fengu það ekki en við erum að njóta þeirra forréttinda. Við erum því ekki í þessari keppni bara til að vera með, sagði Sveinn.
Liðið sem kemst áfram úr þessari viðureign mætir tékkneska liðinu Mladá Boleslav í 2. umferðinni 19. og 26. júlí.