Þór/KA er komið á toppinn í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur gegn Breiðabliki í toppslag deildarinnar á Þórsvelli í kvöld. Katrín Ásbjörnsdóttir kom Þór/KA yfir strax á elleftu mínútu er hún slapp ein í gegn og renndi boltanum framhjá Birnu Kristjánsdóttur markverði Blika. Sandra María Jessen skoraði síðara mark heimamanna og það kom sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Sandra slapp ein í gegnum vörn Blika eftir góða stungusendingu frá Katrínu Ásbjörnsdóttir, lék á markvörðinn og skoraði í autt markið. Lokatölur, 2-0. Þór/KA hefur þrettán stig á toppnum, stigi meira en Íslandsmeistarar Stjörnunnar sem sitja í öðru sæti með tólf stig. Blikar hafa tíu stig í þriðja sæti.