Þór/KA leikur ekki til úrslita í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir að liðið tapaði gegn Stjörnunni, 1-2, á útivelli í undanúrslitum í gærkvöld. Staðan var 1-1 að loknum venjulegs leiktíma og því þurfti að framlengja. Harpa Þorsteinsdóttir hafði komið Stjörnunn yfir í fyrri hálfleik en Sandra María Jessen jafnaði fyrir Þór/KA snemma í síðari hálfleik. Það var svo Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sem skoraði eina mark framlengingarinnar og tryggði Stjörnunni í úrslit, þar sem liðið mætir Val.