Þór/KA skrefi nær titlinum

Stúlkurnar í Þór/KA fögnuðu í kvöld.
Stúlkurnar í Þór/KA fögnuðu í kvöld.

Þór/KA steig stórt skref í átt að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í knattspyrnu er liðið lagði Breiðablik að velli, 2-1, á Kópavogsvelli í kvöld í Pepsi-deild kvenna. Björk Gunnarsdóttir kom heimamönnum Blikum yfir snemma leiks en Rebecca Johnson jafnaði metin fyrir Þór/KA þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Það var svo Kayle Grimsley sem tryggði norðanliðinu stigin þrjú er hún skoraði úr vítaspyrnu tíu mínútum fyrir leikslok.

Þór/KA hefur 35 stig í efsta sæti deildarinnar og er komið með sex stiga forystu á ný, þegar fjórar umferðir eru eftir. Stjarnan hefir 29 stig í öðru sæti og ÍBV 28 stig í þriðja sæti. Blikar hafa 24 stig í fimmta sæti.

Þá var einnig leikið í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld þar sem KA gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn nýliðum Tindastóls. KA hefur 23 stig í fimmta sæti eftir sextán umferðir.

Nýjast