Þór/KA og Valur skildu jöfn

Sandra María Jessen skoraði jöfnunarmark Þórs/KA í kvöld.
Sandra María Jessen skoraði jöfnunarmark Þórs/KA í kvöld.

Þór/KA og Valur skildu jöfn, 1-1, er liðin áttust við á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Dagný Brynjarsdóttir kom Val eftir átta mínútna leik en Sandra María Jessen jafnaði metin fyrir Þór/KA þegar tólf mínútur voru til leiksloka. Bæði liðin fengu færi til þess að stela sigrinum en allt kom fyrir ekki og jafntefli sennilega sanngjörn niðurstaða. Þór/KA fer í sjö stig og deilir toppsætinu með Breiðablik en Valur hefur fjögur stig í fimmta sæti.

Nýjast