Þórduna biðst afsökunar

Verkmenntaskólinn á Akureyri. Mynd:Hörður Geirsson
Verkmenntaskólinn á Akureyri. Mynd:Hörður Geirsson

Þórduna, nemendafélag Verkmenntaskólans á Akureyri, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem beðist er afsökunar á þeim vinningum sem veita átti í happdrætti. Nemendur gátu annað hvort unnið klámmyndir eða kynlífsdúkkur á tölvuleikjamóti.

Í yfirlýsingu frá Þórdunu segir að það hafi alls ekki verið meiningin með þessum vinningum að særa blygðunarkennd unglinga og foreldra heldur hafi einungis verið um að ræða grín. „Sumum fannst þetta grín hins vegar ganga of langt og biðjumst við velvirðingar á því ef við höfum miðsboðið einhverjum. Við tökum jafnframt fram að vinningar sem þessir verða endurskoðaðir fyrir næsta Kallakvöld.“Þetta kemur fram á RÚV

Nýjast