Þór í góðum málum á toppnum

Mynd: Sævar Geir.
Mynd: Sævar Geir.

Þórsarar styrktu stöðu sína á toppi 1. deildar karla í knattspyrnu með 4-0 sigri gegn Tindastóli á heimavelli í kvöld. Orri Freyr Hjaltalín, Ármann Pétur Ævarsson, Kristinn Þór Björnsson og Jóhann Helgi Hannesson skoruðu mörk Þórs í leiknum. Eftir sigurinn í kvöld virðist fátt geta komið í veg fyrir að Þór endurheimti sæti sitt í úrvalsdeildinni en liðið hefur sex stiga forystu á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Tvö efstu lið deildarinnar fara upp um deild.

Nýjast