Þór mætir írska liðinu Bohemians frá Dublin er liðið þeytir frumraun sína í Evrópukeppni en dregið var í hádeginu í dag í Nyon í Sviss rétt í þessu í fyrstu umferð Evrópudeildar UEFA. Einnig voru ÍBV og FH í pottinum þar sem Eyjamenn mæta einnig liði frá Írlandi, St. Patrick's Athletic, en FH mætir Eschen-Mauren frá Liechtenstein. Þór á fyrri leikinn á útivelli sem fram fer fimmtudaginn 5. júlí nk. en seinni leikurinn fer fram á Þórsvelli viku síðar, þann 12. júlí. Fyrr í morgun drógust Íslands-og bikarmeistarar KR gegn HJK Helsinki frá Finnlandi í annarri umferð í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.