Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra mældist 3,1 prósent í síðasta mánuði og er það einu prósenti minna en á sama tíma í fyrra. Alls eru 482 á atvinnuleysisskrá á svæðinu, þar af 189 karlar en 293 konur. Sé Akureyri bara skoðað eru 358 atvinnulausir, 136 karlar og 222 konur. Það sem útskýrir einna helsta þennan kynjamun er að yfir sumartímann fara karlar í útivinnu í meira mæli. Sigríður Ásta Hauksdóttir, náms-og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun, segir útlitið þokkalegt fyrir komandi vetur.
Við erum nokkuð bjartsýn en kvíðin í senn. Það var mjög ánægjulegt að fá þessar tölur yfir júlí og að það muni heilu prósenti á milli ára. Það fóru margir af atvinnuleysisskrá í vor vegna átaksverkefnisins Vinnandi vegur sem var í gangi hjá okkur frá febrúar til júní, en við vitum ekki alveg hvað koma margir inn aftur. En heilt yfir förum nokkuð brött inn í haustið, segir Sigríður.
Á landinu öllu mældist atvinnuleysi 4,7 prósent í júlí og hefur ekki verið minna síðan í nóvember 2008 þegar það var 3,3%. Einnig kemur fram í skýrslu hjá Vinnumálastofnun að tæpur helmingur atvinnulausra á landinu öllu er með grunnskólapróf en næststærsti hópurinn eru háskólamenntaðir, eða 20 prósent. Þá er atvinnuleysi minna í hópi þeirra sem eru með iðnmenntun, stúdentspróf eða aðra framhaldsmenntun. Meðalfjöldi atvinnulausra í júlí var 8.372 eða rúmlega 3.000 færri en fyrir ári þegar 11.423 voru án atvinnu. Tæplega 40 prósent atvinnulausra hafa verið án vinnu í ár eða meira.