Körstjórn Akureyrarbæjar leggur til að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og að í Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla.
Lagt er til að tveir kjörklefar verði í hverri kjördeild á Akureyri, í Hrísey og í Grímsey. Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00 á Akureyri, Hrísey og í Grímsey. Bæjarráð samþykkti í morgun þessar tillögur.