Þjálfarar Þórs í banni gegn KA

Páll Viðar Gíslason verður fjarri góðu gamni þegar hans menn taka á móti KA. Mynd: Sævar Geir.
Páll Viðar Gíslason verður fjarri góðu gamni þegar hans menn taka á móti KA. Mynd: Sævar Geir.

Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs og Halldór Áskelsson aðstoðarmaður hans mun ekki stýra liðinu í leiknum gegn KA á laugardaginn kemur í 1. deild karla í knattspyrnu. Þeir félagar hafa báðir verið úrskurðir í eins leiks bann af Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ vegna óíþróttamannslegrar framkomu í leik Þórs og BÍ/Bolungarvíkur sem fram fór á Þórsvelli á dögunum.

Þar sauð upp úr eftir leik og var leikmaður gestanna m.a. sakaður um kynþáttaníð í garð leikmanns Þórs. Þá var knattspyrnudeild Þórs sektuð um 20 þúsund krónur vegna óíþróttamannslegar framkomu þeirrar Páls og Halldórs.

 

 

Nýjast